Lágmarkspöntunin fyrir brúðartertubragðtegundirar er 50 manns en það er einnig hægt að skreyta hefðbundnu bragðtegundirnar okkar sem brúðartertur fyrir minni veislur.
Það er hægt að panta brúðartertusmakkið okkar hér þegar það er fáanlegt.
Smakkpakki fyrir hefðbundnu braðgtegundirnar okkar eru fáanlegir hér.
Brúðarterturnar okkar eru ýmist með súkkulaði eða vanillukaramellubotn og það eru fjórar fyllingar í boði
Jarðaber, hvítt súkkulaði og freyðivín
Lemoncurd og ylliblóm eins og brúðarterta Harry og Meghan
Belgískt súkkulaði og íslenskt sjávarsalt
Baileys og karamellufrappochino.
Það þarf ekki endilega 50 manna köku fyrir 50 manna veislu ef að það er matur með og aðrar sætar veitingar. Endilega verið í sambandi við okkur til að fá ráðgjöf um hversu stóra köku ykkur vantar. 50 manna terturnar okkar eru á tveimur hæðum en það er einnig hægt að panta nokkrar af minni tertunum okkar. Stærðirnar eru eftirfarandi:
8 manna |
9.200kr |
12 manna |
13.800kr |
16 manna |
18.400kr |
25 manna |
28.750kr |
35 manna (tveggja hæða) |
40.250kr |
45-50 manna |
51.750kr |
Við erum einnig með ýmsar skreytingar í boði, og vinnum með viðskiptavinum okkar til að þróa nýjar skreytingar. Hægt er að sjá myndaalbúmið okkar hér. Fyrir nýjar skreytingar viljum við að það sé haft samband við okkur fyrirfram með góðum fyrirvara svo að við getum rætt saman um hvernig skreytingar eru mögulegar.
Til þess að fá hlekk til að panta brúðarterturnar og fá ráðfæringu um stærðir og skreytingar endilega sendu okkur línu á 17sortir@gmail.com